background

Car rental locations

Worldwide providers

Finndu þinn bíl

Sláðu inn staðsetningu, borg eða flugvöll ...
    Sláðu inn staðsetningu, borg eða flugvöll ...
      Skila bílnum á öðrum stað?
      Sláðu inn staðsetningu, borg eða flugvöll ...

        Mín Bókun

        Allt sem þú þarft að vita til að leigja bíl

        faq
        Hver er upphæð fyrir security deposit (tryggingargjald)?

        Hver bílaleiga hefur þeirra eigin tryggingargjalds reglu. Þú finnur upplýsingar um þessa upphæð þegar þú bókar bílinn undir „Leiguskilmálar“ og á fylgiskjali þínu (Voucher).

        Hvenær greiði ég fyrir bílaleigubílinn?

        Þú munt greiða hluta af leigunni þegar þú bókar bílinn sem staðfestingargjald. Restin af upphæðinni er síðan greidd þegar þú sækir bílaleigubílinn. Við biðjum þig að hafa í huga að greiðslan við afhendingu er greidd í staðargjaldmiðli.

        Eru falin gjöld?

        Það eru engin falin gjöld! Öll lögboðin aukagjöld og fees.. eru skilgreind í skrefi þrjú í bókunarferlinu og í skilmálum og skilyrðum. Við bendum á að aukagjöld geti bæst við leigugjaldið ef um er að ræða:

        • Utan skrifstofutíma gjald (þegar það er sótt bílinn fyrir utan hefðbundinn opnunartíma),
        • Einstefnugjald (Þegar þú skilar bíl á annari staðsetningu en var sótt á),
        • Þjónustugjald fyrir eldsneyti (Fullur tankur regla),
        • Gjald fyrir unga og aldraða ökumenn (Þessi skilyrði eru sett af bílaleigunni og er vanalega ekki tengt settum reglum í tilteknu landi),
        • Sjálfsáhætta og tryggingargjald (Áður en leigt er bíl er mikilvægt að það sé næg heimild á á kreditkortinu fyrir tryggingargjaldinu sem er vanalega sama upphæð og sjálfsáhættan er eða hærri).

        Við mælum með því fyrir viðskiptavini okkar að lesa skilmála og skilyrði vandlega áður en það er leigt bílinn til að hindra óvæntar uppákomur. Okkar þjónustuver hefur mikla þekkingu á þessum málum og eru reiðubúin til þess að aðstoða ef það vakna upp spurningar í gegnum síma, tölvupóst eða í netspjallinu okkar á opnunartíma.

        Hvað er voucher (fylgiskjal) og hvers vegna þarf ég það?

        Voucher er skjal sem staðfestir bókun þína, verðið á leigunni þinni og greiðslan fyrir bókuninni. Það er skilyrði að hafa skírteinið með þér þegar þú sækir bílaleigubílinn. Ef þú hefur ekki voucher með þér þegar það er sótt bílinn, getur bílaleigan neitað að afhenda bílinn eða getur breytt verðinu á bílaleigunni.

        Hvað ef ég vill breyta bókun minni?

        Ef þú þarft að breyta bókun þinni sem þú hefur gert í gegnum Orbit Car Hire biðjum við þig um að hafa samband við þjónustuver okkar í tölvupóst customerservice@orbitcarhire.com eða hringt í +44 20 8089 0089. Við bjóðum upp á Íslenska þjónustu í gegnum okkar þjónustuver. Þú getur afbókað þinni bókun frítt með 48 klukkustunda fyrirvara. Fyrir frekari upplýsingar mælum við með að lesa skilmála og skilyrðin.

        Hvað er innifalið í verðinu?

        Flest öll tilboð gerð hjá Orbit Car Hire hafa innifalið ótakmarkaðan kílómetrafjölda, útsvar, lögboðin gjöld og kaskótryggingu. Í skrefi 1 og 2 í bókunarferlinu eða á skírteininu þínu getur þú séð allar upplýsingar um það sem er innifalið í bókun þinni.